Menningarstjórnun MA

Rekstur og stjórnun á grunni gagnrýnins skilnings

Menningarstjórnunarnámið býr nemendur undir viðamikil og oft vandasöm störf á sviði menningar og menntunar. Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetningu náms og þegar hefur sýnt sig að nemendur sem útskrifast hafa með MA gráðu í menningarstjórnun frá Bifröst eru eftirsóttir starfskraftar og samstarfsmenn á sviði menningar.
Viðhorf til skapandi og menningartengdra atvinnugreina hafa gerbreyst á undanförnum árum. Í stað þess að litið sé á menningu og menntun sem einhvers konar lúxus sem þjóðfélög geti veitt sér - eða ekki, er menning og menntun helsta svið vaxtar og nýsköpunar. Þetta eykur kröfur til þeirra sem vilja hasla sér völl á sviði menningar. Markmið menningarstjórnunarnámsins er að veita nemendum þann grunn og þjálfun í stefnumótun, stjórnun og rekstri sem nauðsynlegur er í menningarumhverfi samtímans.

 

Sérstaða

Bifröst hefur boðið upp á nám í menningarstjórnun síðan árið 2004 og er eini íslenski háskólinn til þess. Námið hefur slípast með árunum og mótast í samræmi við íslenskt menningarhumhverfi og þær áskoranir sem bíða nemenda eftir að námi lýkur. Þar sem námið byggir jafnt á fræðilegri og hagnýtri nálgun gefur það nemendum kost á að vinna með og þróa gagnrýna sýn á menningu og menningarpólitík, um leið og þeir öðlast hagnýta þjálfun sem lýtur að rekstri, stjórnun og skipulagningu.

 

Framvinda og námslok

Nám í Menningarstjórnun skiptist í tvennt: Námskeiðahluta (60 ECTS einingar) og ritgerðarhluta (30 ECTS einingar). Námið hefst á haustönnum þar sem nemendur byrja á að taka námskeið í staðlotu í júlí og ágúst og námskeið í fjarnámi frá september til desember. Vorönnin er öll í fjarnámi, frá janúar fram í maí og þá tekur við sumarönn í júlí og ágúst.

 

Inntökuskilyrði

Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið grunngráðu háskólanáms (t.d. BS, BA, BEd eða BFA ) eða hafa menntun og reynslu sem telja má sambærilega við grunngráðu í háskóla.

 

Umsjón með náminu: Auður H. Ingólfsdóttir, audurhi@bifrost.is 

Umsjónarmaður meistaranáms: Maj Britt Hjördís Briem, majb@bifrost.is

 

Skipulag náms til MA gráðu í menningarstjórnun 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri