Meistaranám

 

Námsframboð á meistarastigi er í stöðugri þróun og leitast er við að bjóða upp á nám sem svarar kalli atvinnulífsins á hverjum tíma. Í dag býður Háskólinn á Bifröst upp á fjölbreytt meistaranám í öllum deildum skólans.

 

Boðið er upp á átta námsleiðir í meistaranámi:

 

MSc/MIB gráður í Alþjóðlegum viðskiptum í viðskiptadeild
MSc/MIF gráður í Fjármála- og bankastarfsemi í viðskiptadeild
MS/MHA gráður í stjórnun heilbrigðisþjónustu í viðskiptadeild
ML gráðu í lögfræði í staðnámi í lagadeild
MA gráðu í skattarétti í lagadeild
LL.M gráðu í evrópskum viðskipta- og félagarétti í lagadeild
MA gráðu í menningarstjórnun í félagsvísindadeild
MA gráðu í Evrópufræðum í félagsvísindadeild
 

Skipulag staðnáms og fjarnámsins miðast við að nemendur stundi fullt nám, eða að lágmarki 60 ECTS einingar á haust- og vorönnum . Námið hefst í júlí með fjögurra til sex vikna staðnámi á Bifröst  þar sem farið er af miklum krafti í tvö eða þrjú námskeið. Í byrjun september, er svo fram haldið í fjarnámi með tveimur vinnuhelgum á haustönn á Bifröst. Haustönn lýkur í desember. Vorönn er öll í fjarnámi. Tvær vinnuhelgar eru einnig á vorönninni. Námskeiðum lýkur svo með öðrum sex vikum í staðnámi á Bifröst rúmu ári eftir upphaf náms fyrir þá sem ljúka námi með ritgerð. Þeir sem kjósa að taka námskeið í stað ritgerða sitja þau námskeið á haust- og vormisseri.  Gerður hefur verið góður rómur að þessu fyrirkomulagi.

 

Umsækjendur og nemendur í meistaranámi athugi sérstaklega að vinnuhelgar eru óaðskiljanlegur þáttur í meistaranáminu enda er þátttaka og virkni á vinnuhelgum metin í einkunn viðkomandi námskeiðs. Því er mjög mikilvægt að nemendur mæti vel á vinnuhelgum og skipuleggi námið með tilliti til þessa. 

 

Staðnámið er hefðbundnara með fyrirlestrum og verkefnavinnu á Bifröst. Námið skiptist á þrjár annir á árinu, haustönn, vorönn og sumarönn. Síðan áfram á haustönn þar til lokið er 90 einingum.

 

Umsjónarmaður meistaranáms við Háskólann á Bifröst er Maj Britt Hjördís Briem, majb@bifrost.is.

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri