MS - International Business fjarnám

Meistaranám í alþjóðlegum viðskiptum
 

Með því að bjóða upp á meistaranám í alþjóðaviðskiptum (International Business) er komið til móts við þarfir fyrirtækja sem starfa hér á landi og erlendis og horft til frekari sóknar á núverandi og nýjum mörkuðum í Evrópu, Ameríku, Asíu eða Afríku.

 

Háskólinn á Bifröst vill uppfylla þörf fyrirtækjanna fyrir víðsýna, vel menntaða stjórnendur og starfsmenn með góða menntun m.a. í fjármálum, stjórnun og markaðsmálum og getu til þess að meta og þróa viðskiptatækifæri á núverandi og nýjum starfssviðum. Einnig er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í því að meta með gagnrýnum hætti tækifæri til úrbóta og sóknar á meginsviðum þeirra fyrirtækja sem þeir starfa fyrir.

 

Nemendum býðst að taka hluta námsins við erlenda samstarfsháskóla.

 

Námið samanstendur af 10 námskeiðum sem eru 60 ECTS einingar og 30 ECTS eininga ritgerð (MSc) eða 15 námskeiðum samtals 90 ECTS einingar án ritgerðar (MIB).

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri