MA í menningarstjórnun
MA nám í menningarstjórnun hefur það að markmiði að þjálfa stjórnendur í menningar- og menntalífi. Námið er miðað við þarfir fólks sem vill öðlast meiri færni í stjórnunarlegum og rekstrarlegum þáttum mennta- og menningarstofnana.
MA í Evrópufræðum
Markmiðið með náminu í Evrópufræðum er að búa nemendur undir þátttöku í evrópsku og öðru fjölþjóðlegu samstarfi. Evrópufræði henta þeim sem hafa áhuga á að starfa við utanríkisþjónustu, Evrópusamstarf ráðuneyta, sveitarfélaga og stofnana; alþjóðlegar stofnanir s.s. EFTA, ESB; NATO og SÞ, alþjóðastörf við háskóla og aðrar menntastofnanir; og alþjóðleg tengslastörf í rannsóknar- mennta- og menningarmálum.
Skólagjöld
Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir lán fyrir skólagjöldum og framfærslu.
Umsóknir
Umsóknarfrestur rennur út þann 10. júlí 2009.
Allar nánari upplýsingar veita forseti félagsvísindadeildar, Jón Ólafsson, jonolafs@bifrost.is og Maj Britt Hjördís Briem, umsjónarmaður meistaranáms, majb@bifrost.is
