Grunnnám í viðskiptalögfræði
Nám til BS gráðu í viðskiptalögfræði er 180 (ECTS) eininga staðnám sem tekur að jafnaði tvö og hálft ár,og sameinar greinar á sviði lögfræði, reksturs og fjármála. Þar eru kenndar grunngreinar lögfræðinnar auk þeirra réttarsviða sem fjalla um rekstur fyrirtækja, og rekstrarumhverfi í víðu samhengi. Ef nemandi hyggst leggja stund á ML nám að BS námi loknu, þarf hann að hafa að minnsta kosti 120 af 180 einingum á sviði lögfræði. Viðskiptafræðihluti námsins er að lágmarki 42 einingar og þar er fjallað um grunnþætti rekstrarhagfræði, reksturs og fjármála. Í fyrri hluta námsins er auk þess kennd stærðfræði, upplýsingatækni og aðferðafræði.Nemendur sem leggja stund á viðskiptalögfræði geta farið í skiptinám á lokaönn námsins.
Meistaranám
Vaxandi fjöldi nemenda sem útskrifast úr grunnámi í viðskiptalögfræði velur að fara í framhaldsnám. Við lagadeild er boðið uppá 120 eininga nám til ML gráðu í lögfræði, 90 eininga nám til MA gráðu í skattarétti, eða MTA gráðu í skattastjórnsýslu (meistaragráða án ritgerðar) og LL.M gráðu í evrópskum viðskipta- og félagarétti (kennt á ensku).
ML gráðan er alfarið kennd í staðnámi og veitir hún rétt til þátttöku í prófraun til málflutningsréttinda. Meistaranám í skattarétti og evrópskum viðskipta- og félagarétti fer að mestu leyti fram í fjarnámi, en þó er kennt í staðnámslotum á sumrin.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur fyrir nám sem hefst á sumarönn og haustönn er 15. júní 2010.
