Kennarar

 

 

 Kennarar við félagsvísindasvið

Auður H. Ingólfsdóttir, sviðsstjóri félagsvísindasviðs, lektor
audurhi@bifrost.is
433 3044 / 892 0678

 

Auður H. Ingólfsdóttir er með BA gráðu í alþjóðafræðum frá Washington háskóla í Seattle, próf í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ og meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Fletcher School of Law and Diplomacy við Tuftsháskóla í Boston. Í meistaranámi sérhæfði hún sig í umhverfis- og auðlindastefnu, samningaviðræðum og úrlausn deilumála. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri við meistaranámsbraut í umhverfisfræðum, sem sérfræðingur í  umhverfisráðuneytinu og sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði umhverfismála. Tímabilið 2006-2008 var hún erlendis á vegum íslensku friðargæslunnar. Áhugasvið hennar eru á sviði alþjóðastjórnmála, umhverfismála, átaka- og friðarfræða. Auður ritstýrði bókinni Grænskinnu (2002), sem er greinasafn um umhverfismál í alþjóðasamhengi, og hefur birt nokkrar greinar, bókarkafla og skýrslur um málefni sem tengjast alþjóðlegum umhverfismálum, m.a. um loftslagsbreytingar og Kyotobókunina. Auður hóf störf við Bifröst í janúar 2010 og kennir námskeið við námslínu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS). Jafnframt hefur hún verið sviðsstjóri félagsvísindasviðs síðan september 2011.


 

 


 

Dr. Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent

eirikur@bifrost.is

433 3084

 

Eiríkur er doktor í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og Cand. Sci. Pol í alþjóðastjórnmálum frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann er dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Eiríkur hefur starfað sem blaðamaður, upplýsingafulltrúi hjá Evrópusambandinu og sem aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að kenna við ýmsa erlenda háskóla. Eiríkur hefur tekið þátt í margvíslegu evrópsku rannsóknarsamstarfi á fræðasviði sínu, er til að mynda þátttakandi í SENT-samstarfsneti Evrópufræða. Eftir hann liggur fjöldi greina, bæði ritrýndra og almenns eðlis, auk ritgerða, fyrirlestra og bóka um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Hann hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í DV, Blaðið/24 stundir og nú í breska dagblaðið The Guardian. Bækur Eiríks eru Ísland í Evrópu [ritstjórn] (2001), Evrópusamruninn og Ísland (2003), skáldsagan Glapræði (2005), Opið land (2008), Hvað með evruna? [ásamt Jóni Þór Sturlusyni] (2008) og „Hið huglæga sjálfstæði þjóðarinnar“ [doktorsrannsókn] (2009).


 

 

 

Dr. Eyjólfur Kjalar Emilsson, prófessor

e.k.emilsson@ifikk.uio.no

 

Eyjólfur lauk B.A. prófi frá Háskóla Íslands 1977 með heimspeki sem aðalgrein, og forngrísku og frönsku sem aukagreinar. Hann hélt eftir það til náms við Princetonháskóla í Bandaríkjunum og lagði þar stund á heimspeki með heimspeki fornaldar að sérsviði. Hann lauk þaðan doktorsprófi 1984 með ritgerðinni Plotinus on Sense-Perception.

Eftir þetta var hann stundakennari og að lokum fastráðinn dósent við HáskólaÍslands í nokkur ár, en frá 1993 hefur hann verið prófessor við Oslóarháskóla. Hann hefur verið gestaprófessor við Princetonháskóla og félagi við Center for Hellenic Studies, Washington D.C. (Harvard). Eftir Eyjólf hafa komið út bækurnar Plotinus on Sense-Perception (Cambridge University Press 1988) og Plotinus on Intellect (Oxford University  Press, 2007) auk fjölmargra ritgerða um heimspeki fornaldar í alþjóðlegum tímaritum og bókum. Hann hefur og þýtt allnokkur heimspeki verk fornaldar á íslensku, m.a. Ríkið eftir Platon. Þrátt fyrir þetta foraldar einlyndi í skrifum, hefur hann áhuga á flestum greinum heimspekinnar og hefur kennt bæði siðfræði og rökfræði og margt þar á milli.


 

 

Dr. Ian Watson, lektor

ian@bifrost.is

433 3078

 

Ian hefur A.B. gráðu í málvísindum frá Harvard háskóla og M.A og Ph.D í félagsfræði frá Rutgers háskóla. Meðal áhugasviða hans eru staðlar og stöðlun, auðkenniskerfi, leturfræði og neytendahreyfingar. Hann hefur einnig langa reynslu af ferðamálum og hefur unnið sem skipuleggjandi ferða, leiðsögumaður og höfundur ferðabóka. Ian er ritstjóri Tímarits um félagsvísindi og hefur einnig unnið sem alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst. Auk kennslu á Bifröst sinnir Ian kennlu við Listaháskóla Íslands.


 

  

Dr. Jón Ólafsson, aðstoðarrektor, prófessor

jonolafs@bifrost.is

433 3022 / 663 4664

Jón hefur doktorsgráðu í heimspeki og framhaldsgráðu í rússneskum fræðum frá Columbia háskóla í New York. Hann hefur auk þess stundað nám í heimspeki við Freie Universität Berlin og Ludwig-Maximilans Universtät í München og einnig verið við nám í heimspeki og rússnesku við Moskvuháskóla. Jón lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands. Helstu áhugasvið Jóns eru á sviði siðfræði, stjórnmálaheimspeki og stjórnmálasögu. Hann er höfundur bókarinnar Kæru félagar (1999) sem fjallar um íslensku kommúnistahreyfinguna og tengsl hennar við Sovétríkin. Greinasafn hans um stjórnmálaheimspeki, Andóf, ágreiningur og áróður kom út haustið 2009. Jón var forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst 2006-2011 og aðstoðarrektor frá janúar 2011. Hann kennir inngangsnámskeið í siðfræði og stjórnmálaheimspeki auk framhaldsnámskeiða í heimspeki.



Dr. Magnús Árni Magnússon, dósent

magnus@bifrost.is

433 3000 / 898 8664

 

Magnús Árni er með doktorsgráðu (PhD) í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, M.Phil. gráðu í Evrópufræðum frá Cambridge háskóla í Englandi og MA gráðu í alþjóða- og þróunarhagfræði frá University of San Francisco í Bandaríkjunum. Hann lauk BA prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og á auk þess að baki nám við Leiklistarskóla Íslands. Magnús er dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Áður hefur hann til að mynda starfað sem rektor og aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst (áður Viðskiptaháskólans á Bifröst), sem deildarforseti félagsvísindadeildar og viðskiptadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst, sem forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem partner hjá Capacent og sem aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, þar sem hann kennir nú sem stundakennari. Rannsóknir Magnúsar í dag beinast að Evrópuvæðingu Íslands.

 

Sjá meira: http://magnusarni.wordpress.com/

 


 

Dr. Njörður Sigurjónsson, lektor

njordur@bifrost.is

433 3080

 

Njörður er doktor í menningarstjórnun (Cultural Policy and Management) frá City Unversity í Lundúnum. Þá hefur hann lokið M.Sc. gráðu í alþjóðaviðskiptum og BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Njörður hefur hefur stundað nám við Copenhagen Business School (viðskiptafræði), Stockholms Universitet (heimspeki) og Université de Rennes I í Frakklandi (heimspeki). Njörður hefur undanfarin ár kennt í meistaranámi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst en hann var áður markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sviðsstjóri í Íslensku Óperunni og síðast framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs.  Njörður  er höfundur bókarinnar Höndlun þekkingar sem út kom hjá Viðskiptafræðistofnun HÍ 2001.


 

 

Sigrún Lilja Einarsdóttir, aðjúnkt og sérfræðingur við rannsóknarmiðstöð.

sigrunlilja@bifrost.is

 

Sigrún stundar doktorsnám í félagsfræði við Háskólann í Exeter og fjallar doktorsrannsókn hennar um tónlistarímynd og upplifun kórfélaga í enskum Bach-kór af flutningi H Moll messunnar eftir Johann Sebastian Bach. Sigrún lauk MA-gráðu í Menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri  og BA-gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Sigrún hefur einnig stundað nám í mannfræði við Háskóla Íslands. Jafnframt hefur hún sjö ára kennslureynslu í grunn- og framhaldsskóla. Sigrún er meðlimur í hópi rannsakenda sem stunda rannsóknir á sviði félagsfræði listgreina (www.socarts.net ), er aðili að NNIMIPA-rannsóknarnetinu (Nordic Network for the Intergration of Music Informatics, Performance and Aesthetics) sem styrkt er af Norræna Rannsóknarsjóðnum (Nordforsk) og tekur þátt í Conventus-rannsóknarverkefninu (sjá http://some.lappia.fi/blogs/conventus/sample-page/ )  sem unnin er undir merkjum Rannsóknarseturs verslunarinnar og er verkefnið styrkt af Grundtvig-áætluninni innan Menntaáætlunar ESB.

 


 

 

 

Snæfríður Baldvinsdóttir, aðjúnkt

snaefridur@bifrost.is

663 0891

 

Snæfríður hefur B.S. gráðu frá John Cabot háskóla í hagfræði og alþjóðamálum og MBA í alþjóðlegum fjármálum frá St. Johns University (2000). Hún hefur auk þess stundað nám í hagfræði við Háskóla Íslands  og Panthéon Sorbonne háskóla í París. Undanfarin 6 ár hefur Snæfríður kennt hagfræði í grunnámi við Háskólann á Bifröst (rekstrarhagfræði, þjóðhagfræði, alþjóðahagmál og hagnýta hagfræði). Snæfríður bjó 17 ár í París, Róm og Mexíkóborg þar sem hún starfaði meðal annars sem sérfræðingur á vegum alþjóðlegra stofnana og fyrirtækja. Meðal áhugasviða Snæfríðar eru alþjóðahagmál, skattar og velferðarhagfræði. Hún rannsakar nú áhrif kreppu hér á landi á  tekjudreifingu.


 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri