Þrjár greinar - sameiginleg sýn
HHS er nám sem hefur að markmiði að veita nemendum einstakan undirbúning að þátttöku á atvinnumarkaði þar sem gerðar eru miklar kröfur og þróun er hröð. Námið veitir einnig góðan undirbúning að fjölbreytilegu framhaldsnámi á sviði hug- og félagsvísinda. Í því fléttast saman þrjár grunngreinar hug- og félagsvísinda sem oftast eru kenndar hver í sínu lagi. Með því að nýta aðferðir og innsýn þessara þriggja greina saman, verður til óvenjulegt og innihaldsríkt grunnnám sem gerir nemendum mögulegt að skilja hvernig ólík sjónarhorn fræðanna geta unnið saman.
Sérstaða
Bifröst hefur, einn íslenskra háskóla, boðið upp á nám í HHS síðan 2005. Yfir eitt hundrað nemendur hafa útskrifast með BA próf í HHS á þessum tíma. Margir hafa farið beint út á vinnumarkaðinn, aðrir í framhaldsnám við íslenska og erlenda háskóla. HHS námið er einstakt tækifæri til grunnmenntunar sem sameinar sýn og leiðir þriggja grunngreina hug- og félagsvísinda. Í náminu er áhersla lögð á að tengja greinarnar saman og gera nemendum kleift að beita aðferðum hverrar fyrir sig eftir því sem við á. Reynslan hefur sýnt okkur að HHS-ingar eru vaxandi hópur velmenntaðra og víðsýnna einstaklinga sem eiga auðvelt með að fóta sig á nýjum vettvangi og láta til sín taka.
Nám á Bifröst
Fyrstu tvær annir grunnnáms á Bifröst taka nemendur í öllum línum að miklu leyti sömu námskeið. Þannig byggja allir á sama þverfaglega grunni, sem reynist góð undirstaða þegar að aukinni sérhæfingu kemur í framhaldinu. Í öllu námi á Bifröst er lögð rík áhersla á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausn stærri verkefna, kynnt þau og lagt í dóm kennara og samnemenda. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni sem eru fleiri og umfangsmeiri en almennt gerist við háskóla hér á landi.
Framvinda og námslok
Nám til grunngráðu tekur yfirleitt þrjú ár. Á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumarnám er hluti reglulegs náms. Nemendur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Þannig er hægt að ljúka námskeiðum að mestu leyti á tveimur árum, en á þriðja ári gera nemendur lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem eftir eru með starfsþjálfun eða valnámskeiðum. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu ári.
Inntökuskilyrði
Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.
Umsjón með náminu: Auður H. Ingólfsdóttir, audurhi@bifrost.is
Skipulag náms í HHS til BA prófs
Skipulag náms í HHS - fjarnámi.
Umsókn í staðnám:

Umsókn í fjarnám:
