Frumgreinanám

Skilvirkur undirbúningur að háskólanámi

Boðið er upp á námið í staðnámi og fjarnámi. Það er ætlað þeim sem ekki fullnægja inntökuskilyrðum um stúdentspróf og öðrum sem vilja styrkja umsókn sína um nám á Bifröst með eins árs undirbúningi í grunnfögum. Nám í frumgreinadeild er góð leið fyrir umsækjendur sem hafa verið frá námi í langan tíma, að bæta grunnmenntun sína áður en ráðist er í háskólanám. Í frumgreinadeild eru þau grunnfög kennd sem nýtast nemendum best til undirbúnings fyrir nám í háskóladeildum Háskólans á Bifröst. Lögð er áhersla á kennslu í ensku, stærðfræði, bókhaldi og upplýsingatækni. Auk þess er kennd hagfræði, stjórnmálafræði, lögfræði, íslenska og heimspeki.  Mælst er til að umsækjendur hafi lokið ensku og stærðfræði 103 og 203 á framhaldsskólastigi eða sambærilegum námskeiðum.

 

Framvinda og námslok

Kennsla í staðnámi fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum. Kennsla í fjarnámi er í formi fyrirlestra sem aðgengilegir eru á námsvef skólans. Einnig er boðið upp á vinnuhelgar í hverju námskeiði þar sem nemendur hitta kennarann og samnemendur. Verkefnavinna er þungamiðjan í frumgreinanáminu eins og í öðru námi á Bifröst. Verkefnin eru ýmist einstaklingsverkefni eða hópverkefni.

 

Kennsluárinu er skipt í tvö 14 vikna misseri auk 9 vikna sumarannar í staðnámi. Regluleg kennsla stendur samtals í 13  vikur á hvoru misseri og próf í eina viku. Á sumarönn er prófað eftir hverja lotu en loturnar eru þrjár. Fjarnámsárinu er skipt í sex og þriggja vikna lotur og ljúka nemendur einu til tveimur námskeiðum í hverri lotu.

 

Inntökuskilyrði

Umsækjendur í frumgreinadeild þurfa að hafa lokið um 140 (fein) einingum á framhaldsskólastigi, lánshæfu námi frá sérskóla samkvæmt skilgreiningu LÍN eða sambærilegu námi. Umsækjendur sem orðnir eru 25 ára eiga möguleika á að fá starfsreynslu metna til eininga að hluta. Almennt ganga þeir umsækjendur fyrir sem eldri eru en 25 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Nám í frumgreinadeild er á framhaldsskólastigi og er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

 

Aðgangur að háskólanámi

Nemendur sem ljúka námi í frumgreinadeild með I. einkunn (7,25) eða hærra eiga forgang á skólavist í háskóladeildum skólans á næsta háskólaári. Þó er ekki unnt að tryggja nemendum úr frumgreinadeild fleiri en 30 pláss í háskóladeildunum. Ef umsóknir eru fleiri en hægt er að taka við skal þrjátíu efstu umsækjendunum tryggt pláss en öðrum nemendum er frjálst að sækja um og fara þá í hóp almennra umsækjenda.

 

Umsjón með náminu: María Einarsdóttir, mariae@bifrost.is

 

Skipulag frumgreinanáms í staðnámi. Hægt er að sækja um staðnám hér:

 

 

 

 

 

 

Skipulag frumgreinanáms í fjarnámi.

 

Hægt er að sækja um fjarnám hér:

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri