Krefjandi nám í fögru umhverfi
Háskólinn á Bifröst er staðsettur í miðri náttúruparadís í rúmlega klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Skólinn býður í dag upp á nám í frumgreinadeild ásamt grunn- og meistaranámi á háskólastigi á þremur fræðasviðum, viðskiptasviði, lögfræðisviði og félagsvísindasviði. Þá er starfrækt við skólann símenntun á sviði viðskipta og rekstrar.
Í
frumgreinadeild er boðið upp á eins árs undirbúningsnám fyrir nám á háskólastigi. Deildin er ætluð nemendum sem hafa u.þ.b. þriggja ára framhaldsskólanám og/eða umtalsverða reynslu úr atvinnulífinu. Á viðskiptasviði er boðið upp á nám til BS og BBA gráðu í viðskiptafræði, bæði í fjarnámi og staðnámi, ásamt meistaranámi í alþjóðaviðskiptum. Á lögfræðisviði er boðið upp á nám til BS gráðu í viðskiptalögfræði, ásamt meistaranámi í lögfræði. Á félagsvísindasviði er boðið upp á nám til BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS), bæði í staðnámi og fjarnámi. Þar er jafnframt hægt að stunda meistaranám í menningarstjórnun og menningarfræði (í samstarfi við HÍ).
Allt nám við skólann, utan símenntunarnámskeiða, er lánshæft samkvæmt reglum
Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Við inntöku í skólann er leitast við að veita jöfn tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri, efnahag, fötlun eða búsetu og mynda þannig fjölbreyttan hóp nemenda með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu.
Háskólinn á Bifröst hefur löngum lagt mikinn metnað í að bjóða upp á nám í litlum hópum þar sem áhersla er lögð á verkefni sem eiga uppruna sinn í raunverulegum álitaefnum viðskipta- eða þjóðlífs. Kennsluhættirnir gera ráð fyrir að nemandinn sé virkur þátttakandi í kennslu og nemendur fá einnig góða leiðsögn í framsögu og tjáningu, ásamt öðrum praktískum þáttum sem búa þá undir þátttöku á vinnumarkaði. Þá er skólinn stoltur þátttakandi í átaki SÞ til menntunar ábyrgra stjórnenda PRME ásamt 400 menntastofnunum víðsvegar um heim.
Nemendur við Háskólann á Bifröst geta stundað hluta námsins við erlenda samstarfsháskóla í þremur heimsálfum og á hverju ári kemur hópur erlendra nemenda til að stunda nám á Bifröst. Hluti náms á Bifröst fer fram á ensku.