Menningarstjórnunarnámið veitir nemendum traustan bakgrunn í stjórnunar-, rekstrar- og menningarfræðum og býr þá undir viðamikil og oft vandasöm störf á sviði menningar og menntunar. Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetningu náms og þegar hefur sýnt sig að nemendur sem útskrifast hafa með MA gráðu í menningarstjórnun frá Bifröst eru eftirsóttir starfskraftar og samstarfsmenn á sviði menningar.
Markmið
Viðhorf til skapandi og menningartengdra atvinnugreina hafa gerbreyst á undanförnum árum. Í stað þess að litið sé á menningu og menntun sem einhvers konar lúxus sem þjóðfélög geti veitt sér - eða ekki, er menning og menntun helsta svið vaxtar og nýsköpunar. Þetta eykur kröfur til þeirra sem vilja hasla sér völl á sviði menningar. Markmið Menningarfræðinámsins er að veita nemendum þann grunn og þjálfun í stefnumótun, stjórnun og rekstri sem nauðsynlegur er í menningarumhverfi samtímans.
Skipulag
Nám í Menningarstjórnun skiptist í tvennt: Námskeiðahluta (60 ECTS einingar) og Ritgerðarhluta (30 ECTS einingar). Hægt er að hefja nám á vorönn sem hefst í janúar eða Haustönn sem hefst í júlí. Til að geta hafið vinnu við lokaritgerð þarf nemandi í Menningarstjórnun að ljúka eftirfarandi námskeiðum.
Sumar 1
Inngangur að Menningarstjórnun (6 ECTS einingar)
Evrópumenning (6 ECTS einingar)
Menning, markaður, miðlun (6 ECTS einingar)
Haust 1
Aðferðafræði (6 ECTS einingar)
Áætlanagerð og verkefnastjórnun (6 ECTS einingar)
Vor 1
Menningarfræði (6 ECTS einingar)
Menningarhagfræði (6 ECTS einingar)
Haust 2
Fjármálastjórnun (6 ECTS einingar)
Lögfræði fyrir stjórnendur (6 ECTS einingar)
Menningarstefna (6 ECTS einingar)
Haust og vor 2
M.A. ritgerð (30 ECTS einingar)
Nánari upplýsingar um námskeiðin hér
Vorönnum og haustönnum er skipt í tvo hluta: Fjarnámshluta og staðnámshluta. Boðið er upp á námskeið í fjarnámi frá janúar til maí (vorönn) og september til desember (haustönn) Í júlí og ágúst fer kennsla fram í staðnámi á Bifröst. Nemandi sem hefur nám á haustönn byrjar á að taka þrjú staðnámskeið á Bifröst og heldur svo áfram með tvö námskeið í fjarnámi til að ljúka samtals 30 ECTS einingum á haustönn. Vorönn hefst með tveimur námskeiðum í fjarnámi í janúar og lýkur með þremur námskeiðum í staðnámi á Bifröst í júlí og ágúst, einnig samtals 30 ECTS einingar.
