Námsleiðir

Krefjandi nám í fögru umhverfi

 

Undanfarinn  áratug hefur mikil uppbygging átt sér stað á Bifröst.  Nýjar byggingar hafa risið í háskólaþorpinu, bæði skóla- og íbúðarhúsnæði og nemendum hefur fjölgað hratt. Námsframboð við skólann hefur að sama skapi aukist mikið. Skólinn býður í dag upp á frumgreinadeild, grunn- og meistaranám á háskólastigi í þremur háskóladeildum, auk símenntunar á sviði viðskipta og rekstrar.

 

Við skólann eru starfræktar félagsvísindadeild, lagadeild og viðskiptadeild.

 

Í  frumgreinadeild er boðið upp á eins árs undirbúningsnám fyrir nám á háskólastigi. Deildin er ætluð nemendum sem hafa u.þ.b. þriggja ára framhaldsskólanám og/eða umtalsverða reynslu úr atvinnulífinu.

 

Allt nám við skólann, utan símenntunarnámskeiða, er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

 

Við inntöku í skólann er leitast við að veita jöfn tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri, efnahag, fötlun eða búsetu og mynda þannig fjölbreyttan hóp nemenda með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu.

 

Háskólinn á Bifröst stefnir að því að skapa nemendum sínum samkeppnisyfirburði á vinnumarkaði að námi loknu. Skólinn hefur frumkvæði að nýjungum í kennsluháttum með tæknivæðingu og skipulagi sem hentar hraða samtímans. Á Bifröst er lögð áhersla á hópstarf og verkefnavinnu í nánum tengslum við innlent og erlent atvinnulíf.

 

Nemendur geta stundað hluta námsins við erlenda samstarfsháskóla í þremur heimsálfum og á hverju ári kemur hópur erlendra nemenda til að stunda nám á Bifröst. Hluti náms á Bifröst fer fram á ensku. Undanfarin ár hafa um 40% grunnnema við skólann tekið eina eða tvær annir af námi sínu erlendis.

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri