Alþjóðaviðskipti MS

Undirbúningur að krefjandi störfum í alþjóðlegu umhverfi

Meistaranámi í alþjóðaviðskiptum er ætlað að veita þjálfun til sérhæfðra starfa hjá fyrirtækjum sem starfa hér á landi og erlendis. Horft er til  sóknar íslenskra fyrirtækja á núverandi og nýjum mörkuðum í Evrópu og annars staðar í veröldinni. Sérstaklega er horft á stefnumótun og markaðssetningu nýrra viðskiptahugmynda á erlendum mörkuðum.
Háskólinn á Bifröst vill sjá fyrirtækjum fyrir víðsýnum, vel menntuðum stjórnendum og starfsmönnum með góða þekkingu á fjármálum, stjórnun og markaðsmálum og getu til þess að meta og þróa viðskiptatækifæri á núverandi og nýjum vettvangi. Einnig er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í því að meta með gagnrýnum hætti tækifæri til úrbóta og sóknar á meginsviðum þeirra fyrirtækja sem þeir starfa fyrir.

 

Sérstaða

Námið nýtir og byggir á þekkingu og reynslu fólks sem starfað hefur á mismunandi sviðum viðskipta. Kennsluaðferðir eru frábrugðnar því sem þekkist annars staðar þar sem blandað er saman fjarnámi og staðnámi. Fjarnámið er í boði á haust- og vorönnum en þá hittast nemendur einnig á vinnuhelgum á Bifröst. Staðnámið er í boði á sumarönnum en þá dvelja nemendur í fjórar til sex vikur á Bifröst. Kennslan byggir að miklu leyti á raunhæfum verkefnum sem tengjast atvinnulífinu. Nemendur eiga þess kost að nýta samstarfssamninga Bifrastar við erlenda háskóla og taka hluta námsins erlendis.

 

Framvinda og námslok

Námið samanstendur annað hvort af 15 námskeiðum samtals 90 ECTS einingar án ritgerðar (MIB gráða) eða færri námskeiðum og lokaritgerð.  Þannig er í boði að taka 60 ECTS einingar í námskeiðum og 30 ECTS eininga ritgerð (MS gráða) eða 72 ECTS einingar í námskeiðum og 18 ECTS eininga ritgerð (MS gráða).  Nemendur geta þannig valið hvort þeir taka 10 -12 námskeið og ritgerð eða taki 15 námskeið og sleppi ritgerð.

 

Inntökuskilyrði

Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið grunngráðu háskólanáms (t.d. BS eða BA) eða hafa menntun og reynslu sem telja má sambærilega við grunngráðu í háskóla.

 

Umsjón með náminu: Sigurbjörn Einarsson, sigurbjorn@bifrost.is

Umsjónarmaður meistaranáms: Brynjar Þór Þorsteinsson, brynjar.thorsteinsson@bifrost.is

 

 

Skipulag náms til MS eða MIB gráðu í alþjóðaviðskiptum 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri