Allt til alls - góður aðbúnaður bætir árangur
Háskólinn á Bifröst gerir kröfur til nemenda sinna og þeir gera kröfur til skólans. Góður árangur krefst góðrar aðstöðu fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra.
Góð aðstaða til lestrar
Vinnuherbergi í aðalbyggingu og Hamragörðum eru opin allan sólarhringinn.
Fullbúin líkamsræktarstöð, gufa og heitir pottar
Líkamsræktarstöð heldur nemendum í formi og í dagslok má slaka á í gufu, ljósum og heitum pottum. Boðið er upp á jóga, boot camp, spinning o.fl.
Kaffi Bifröst
Kaffi Bifröst tekur um 100 manns í sæti. Þar má fá rétt dagsins í hádegi, súpu, salat og brauð á sanngjörnu verði. Jafnframt er boðið upp á rétti af matseðli, úrvals kaffi og fleira. Spurningakeppnin Gettu Bifröst er háð á kaffihúsinu hvert þriðjudagskvöld og nýtur mikilla vinsælda.
Fjölbreyttir útivistarmöguleikar
Í þorpinu miðju er leikvöllur fyrir yngri börnin, örstutt er út á fótboltavöll og golfvöllurinn Glanni er í göngufæri við skólann. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.
Glæsileg verslun
Verslun Samkaupa var opnuð í háskólaþorpinu haustið 2007.
Afgreiðslutímar eru eftirfarandi:
Mánudaga til föstudaga: 08:30-18:00, laugardaga og sunnudaga frá 11:00-16:00.
Sími: 435 0122 / 659 2839
Netfang: bifrost@samkaupstrax.is
Verslunarstjóri er Unnur Alexandra Sigurðardóttir.