Tónleikar 2007-2009

 

Háskólatónleikar á Bifröst eru að jafnaði síðasta miðvikudag í mánuði á tímabilinu september til maí. Þeir hefjast klukkan 17.00 og standa í klukkutíma. Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis.


25. nóvember

Tríói Andrésar Þórs. Tríóið skipa,  Andrésar Þórs Gunnlaugssonar sem leikur á gítar, Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Einar Valur Scheving trommuleikari.


 

28. október

Djasstríó Árna Heiðars Karlssonar píanóleikara, Gunnars Hrafnssonar kontrabassaleikara og Matthías Hemstock trommuleikara leika djass í Hriflu


 

30. september

Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson flytja lög af nýjum diski og Mannakornssmellina á Kaffihúsinu.  


27. maí

Theodóra Þorsteinsdóttir, sópransöngkona, flytur sönglög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, grísk þjóðlög eftir Ravel, Sígaunaljóð eftir Dvorák auk óperuaría og laga úr söngleikjum. Undirleik annast Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Tónleikarnir verða í Hriflu.


29. apríl

Gunnar Þórðarson tónskáld flytur eigin tónlist á Kaffi Bifröst.


25. mars

Karlakórinn Söngbræður í Hriflu undir stjórn Viðars Guðmundssonar.


25. febrúar

Tríó Tómasar R. Einarssonar ásamt söngkonunni Ragnheiði Gröndal flytja tónlist af geisladisknum Trúnó. Tónleikarnir verða í Hriflu.


28. janúar

Hljómsveitin Jeff Who? á Kaffi Bifröst


 

19. nóvember 2008

Guðrún Ingimarsdóttir sópransöngkona og Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari flytja lög af nýútkomnum geisladiski Norðurljós og lög úr íslenskum leikhúsverkum eftir Jón Ásgeirsson, Sigvalda Kaldalóns, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Þórarinsson o.fl.


29. október 2008

Stuðmenn í Hriflu


17. september 2008

Hrólfur Vagnsson og Iris Kramer leika fjölbreytta tónlist á harmonikku og blásturshljóðfæri.


13. september 2008

Hollvinadagur - hljómsveitin Upplyfting leikur á tónleikum og fyrir dansi.


18. júlí 2008

Menningarhátíð á Bifröst - Voces Masculorum undir stjórn Jónasar Þóris Þórissonar. Á efnisskránni er meðal annars frumflutningur Bifrastarlagsins eftir Jóhann G. Jóhannsson.


28. maí 2008

Tónleikar í boði FÍT og FÍH. Sigrún Eðvaldsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Helga Þórarinsdóttir og Zbigniew Dubik flytja sígilda tónlist.


30. apríl 2008

Söngfuglar að sunnan - Ingveldur Ýr Jónsdóttir söngkona og Guðríður St. Sigurðardóttir píanóleikari flytja sönglög frá ýmsum löndum. Þeim til aðstoðar er ellefu manna söngsveit.


27. febrúar 2008

Bandið bak við eyrað flytur ljóð og lög eftir kanadísku listakonuna Joni Mitchell. Hljómsveitina skipa Ása Hlín Svavarsdóttir söngur, Gunnar Ringsted gítar, Ólafur Flosason óbó og Zsuzsanna Budai píanó.  


30. janúar 2008

Michael Clarke barítón og Þórarinn Stefánsson flytja lög úr Söngbók Garðars Hólm, auk íslenskra þjóðlaga og vinsælla sönglaga eftir íslenska höfunda.


28. nóvember 2007

Anna Jónsdóttir sópransöngkona og Marion Herrera hörpuleikari flytja aðventutónlist frá ýmsum löndum.

 


31. október 2007

Kristjana Stefánsdóttir og Tregasveitin flytja eftirlætisblúsa söngkonunnar. Auk hennar er hljómsveitin skipuð þeim Agnari Má Magnússyni píanóleikara, Gunnari Hrafnssyni bassaleikara og Einari Sceving trommuleikara.


26. september

Hljómsveitin Camerarctica flytur verk eftir Mozart, Beethoven og Crusell.    


22. maí 2007

Íslenski saxófónkvartettinn flytur tónlist eftir Jean Francaix, Jean Rivier, Gabriel Bierne,Eugene Bozza, Pierre Max Dubois og fleiri. Kvartettinn skipa Vigdís Klara Aradóttir sópran-saxófónn, Sigurður Flosason alt-saxófónn, Peter Tomkins tenór-saxófónn og Guido Baumer barítón-saxófónn.


24. apríl 2007

Nemendur og kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar flytja fjölbreytta tónlist.


27. mars 2007

Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari kynna tvö glæsileg einleiksverk fyrir fiðlu sem verða flutt skömmu síðar á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Verkin eru Rómansa eftir Dvorak og Sígauninn (Tzigane) eftir Ravel. Ennfremur flytja þau sónötu nr. 10 í G-dúr Opus 96 eftir Beethoven.


6. mars 2007

Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari flytja fjölbreytta tónlist eftir íslensk og erlend tónskáld.


13. febrúar 2007

Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópransöngkona og Jónas Ingimundarson, píanóleikari flytja  íslensk þjóðlög og sönglög, lög úr söngleikjum, þekktar aríur og undir lokin hina  tregafullu vókalísu (sönglag án orða) rússneska tónskáldsins Sergei Rachmaninoffs. Inn á milli fylgja kynningar Jónasar og hugleiðingar um tónlistina og þýðingu hennar. 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri