Kaffi Bifröst

 

 

Kaffi Bifröst er hjarta staðarins.  Þar er boðið upp á fjölbreyttan mat í hádeginu og svo er ávallt boðið upp á gott kaffi og meðlæti.  Þá eru oft einhverjir viðburðir á Kaffi Bifröst eins og tónleikar, Gettu Bifröst, beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum og svo mætti lengi telja.  Kaffi Bifröst er því matstofa, kaffihús, veitingastaður og félagsheimili allt í senn.

 

Kaffihúsið er rekið með það að markmiði að bjóða upp á hollan og fjölbreyttan mat og er víða leitað fanga. Kaffihúsið leikur lykilhlutverk í þeirri lífstílsbreytingu sem nú á sér stað á Bifröst.  Þess vegna er mikið lagt upp úr hollum réttum sem bæta heilsu fólks. 

 

Alltaf eru á borðstólnum góðar súpur, heimabakað brauð og salatbarinn sívinsæli.  Verði er stillt í hóf.

 

Opnunartímar  (nema annað sé tekið fram):

Virka daga frá 8.00 – 21.00
Helgaropnun er frá 11.00 – 17.00

 

 

Verið hjartanlega velkomin.

 

Starfsfólk Kaffi Bifrastar

 

 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri