Gistiheimilið á Bifröst

Bifröst B&B

 

Bókanir

Bóka má herbergi með tölvupósti gistiheimili@bifrost.is  eða í síma 433 3000 á skrifstofutíma og 435 0101 milli klukkan 16:00 og 22:00. Einnig má bóka með faxi; 433 3001 / 435 0102.

 

Gestir skrá sig inn á Kaffi Bifröst.

Gistihúsið á Bifröst hefur tuttugu rúmgóðar stúdíóíbúðir til leigu í Hamragörðum.

Íbúðirnar eru í miðju háskólaþorpinu. Þær eru um 30 fermetrar að stærð, með eldhúskróki og baði.  Snúrunettenging er í íbúðunum, ísskápur, örbylgjuofn og nauðsynlegustu eldhúsáhöld.

 

Verð (öll verð með morgunverði):


Fyrir einn: 13.900  krónur

Fyrir tvo: 19.800  krónur


Rúm fyrir barn (ekki smáb. rúm):

Kr. 4.000.-

Fullorðinn aukarúm í herbergi:

Kr. 11.700.-

Kaffi Bifröst

 

Morgunverður er borinn fram, frá klukkan 7.00 - 10.30, á Kaffi Bifröst í næsta húsi við Hamragarða. 

 

Opið frá klukkan sjö á morgnana til tíu á kvöldin.

Á Kaffi Bifröst er

boðið upp á úrval léttra rétta af matseðli, rétt dagsins í hádeginu, súpu, salatbar, frábært kaffi, barþjónustu og fleira.

 

 

 

 

Gestir gistiheimilisins hafa frían aðgang að líkamsræktarstöð, gufubaði, heitum pottum og tómstundaherbergi með pool- og borðtennisborðum.
Í miðju háskólaþorpsins er lítill leikvöllur fyrir börnin. Fótboltavöllur og golfvöllurinn Glanni eru í göngufjarlægð. Margar fallegar gönguleiðir er að finna í næsta nágrenni.
Borgarfjörðurinn býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og styttri ferðalaga. Bifröst er kjörinn staður til þess að slaka á og njóta náttúrufegurðar og menningar í Borgarfjarðarhéraði.

 

 

 

 


 

 

 


 


 


 


 

 

 


 


 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri