Fréttir
Grunnur að góðu tengslaneti
	<description>Háskólinn á Bifröst útskrifaði um helgina hóp kvenna úr hinu vinsæla rekstrarnámi, Máttur kvenna. Þetta er í níunda sinn sem skólinn útskrifar konur úr náminu en um 700 konur allstaðar af landinu með ólíkan bakgrunn hafa lokið náminu.  Máttur kvenna er rekstrarnám fyrir konur og fer fram í fjarnámi í 12 vikur með vinnulotum á Bifröst í upphafi og lok námstímans.
Við útskriftina sagði Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst m.a. :   ,,Máttarkonur ná oft ótrúlega vel saman og kunna svo sannarlega að skemmta sér saman og leggja grunn í náminu að ævilöngu tengslaneti, sem er í reynd lang mikilvægasti þátturinn þegar maður mætir þeirri samkeppni sem oft er um góð störf á vinnumarkaði.”
Konurnar sem útskrifuðust í ár komu víða að en þær eru frá Ísafirði, Neskaupsstað, Þingeyjasveit, Vestmannaeyjum, Grundarfirði, Stykkishólm, Borgarnesi, Akranesi, Grindavík, Selfossi og af höfuðborgarsvæðinu.</description>
Árið 2033, svifbílar, fjögurra klukkustunda vinnudagur og grillað allan daginn?
	<description>Nýr rektor Háskólans á Bifröst, Vilhjálmur Egilsson, Hrund Gunnsteinsdóttir, ráðgjafi og Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands ræða framtíðarsýn sína fyrir íslenskt samfélag á morgunfundi á vegum Háskólans á Bifröst.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn næsta 17. maí klukkan 8:30 – 10:00. Boðið verður upp á morgunmat og kaffi.
Fundurinn er lokapunkturinn á fundaröð skólans um framtíðina sem hefur verið í gangi í allan vetur við góðar undirtektir.
Allir velkomnir!</description>
Aðalfundur Háskólans á Bifröst
	<description>Aðalfundur Háskólans á Bifröst verður haldinn 15. maí næstkomandi kl. 11:00 í Hátíðarsal skólans. Fundurinn, sem jafnframt er opinn ársfundur skólans er öllum opinn, en meðal aðalfundarstarfa er kjör nýrra stjórnarmanna og fulltrúaráðs skólans auk tillaga til breytingar á skipulagsskrá skólans.</description>
Einstaklega vel heppnaður opinn dagur á Bifröst
	<description>Í dag, 9.maí, var haldinn vel heppnaður opinn dagur hjá Háskólanum á Bifröst. Frábær aðsókn var á þá viðburði sem boðið var uppá í tenglsum við daginn, auk kynninga á námsleiðum. Háskólinn á Bifröst þakkar öllum þeim sem lögðu leið sína á Bifröst og einnig öllum þeim nemendum og starfsfólki sem lögðu hönd á plóg.</description>
Háskólinn á Bifröst veitir námsstyrk
	<description>Í dag var undirritað samkomulag þess efnis að einn lykilleikmaður knattspyrnudeildar Skallagríms fái niðurfelld skólagjöld frá og með haustönn 2013.</description>
Útskrift úr Stjórnun og samvinnu í ferðaþjónustu
	<description>Í dag fór fram útskrift úr Stjórnun og samvinnu í ferðaþjónustu. Námið er eitt margra námskeiða í Símenntun Háskólans á Bifröst og er sérsniðið að þörfum stjórnenda og rekstraraðila hótela, veitingahúsa og annarra ferðaþjónustuaðila.</description>
Árangursrík heimsókn til Finnlands
	<description>Í apríl síðastliðnum fór hópur nemenda frá Háskólanum á Bifröst til Finnlands til að taka þátt í svokölluðu InnoMarathoni. Um er að ræða námskeið styrkt af Evrópusambandinu þar sem nemendur fá tækifæri til að vinna verkefni í samstarfi við fyrirtæki sem byggja á nýsköpunar og frumkvöðlafræðum. Að námskeiðinu standa 5 lönd í Evrópu sem koma til með að skiptast á að halda utan um námskeiðið.</description>
Annað tölublað fréttabréfs Háskólans á Bifröst komið út
	<description>Út er komið annað tölublað fréttabréfs Háskólans á Bifröst. Meðal efnis í fréttabréfinu er umfjöllun um opinn dag þann 9. maí, viðtöl við tvo kraftmikla Bifrestinga og umfjöllun um ráðstefnu um þjóðfélagsfræði sem hófst í dag á Bifröst.</description>
Opinn dagur á Bifröst 9. maí, uppstigningardag
	<description>Verið velkomin á opinn dag á Bifröst 9. maí milli 14 og 17.</description>
Ráðstefna í þjóðfélagsfræðum á Bifröst
	<description>Háskólinn á Bifröst stendur fyrir árlegri ráðstefnu í þjóðfélagsfræðum dagana 3. og 4. maí næstkomandi. Á ráðstefnunni verða yfir eitt hundrað fyrirlestrar haldnir og fjalla þeir um allt á milli himins og jarðar; kynlíf í gamla bændasamfélaginu, hagræn áhrif bókaútgáfu, áhugamannakóra, kannabisnotkun fullorðinna, fiskveiðideilur á Norðurslóðum, þróunarsamvinnu, efnahagsástandið, áhrif og óhefðbundnar lækningar,  konur í stjórnum fyrirtækja og lýðræðistilraunir svo fátt eitt sé nefnt.  
Báðir dagar ráðstefnunnar hefjast á meginfyrirlestri fyrir alla gesti og þátttakendur en aðrir fyrirlestrar verða fluttir í málstofum. Fimm málstofur verða í gangi samhliða báða dagana.
Vilhjálmur Árnason prófessor við Háskóla Íslands talar seinni daginn um íslenskt lýðræði í aðdraganda og eftirmála hrunsins. Vilhjálmur færir í erindi sínu rök fyrir því að þeir veikleikar íslensks samfélags sem dregnir voru fram í rannsókn á orsökum bankahrunsins haldist í hendur við vissa útgáfu af frjálslyndri sýn á lýðræði þótt aðrir þættir frjálslynds lýðræðis, svo sem hófsöm temprun valdsins og jafnvægi valdþátta, hafi verið vanræktir.
Aagot Óskarsdóttir við Háskólann á Bifröst talar fyrri daginn um þær áskoranir sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá hefur verið íslenskri lögfræði. Hún beinir sjónum beint að umræðu um og þróun ákvæðis um þjóðareign á auðlindum og samræðu lögfræðinnar við samfélagið hvað það varðar. Þá veltir hún upp þeirri spurningu hvort aðferðin við gerð stjórnarskrárfrumvarpsins sem Alþingi hafði til meðferðar á síðasta þingi kalli að einhverju leyti á breyttar áherslur við skýringu stjórnarskrárákvæða.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér http://www.bifrost.is/thjodfelag/
Skráningu þátttakenda er lokið, en áhugasamir geta skráð sig sem gestir á meginfyrirlestur og í eina til tvær málstofur. Gestaþátttaka kostar 1000 kr.</description>
Fjölsótt menntaþing í Hjálmakletti
	<description>Tvö hundruð manns sóttu menntaþing í Hjálmakletti í Borgarnesi á föstudag en þingið er afrakstur verkefnis nemenda í Sterkari stjórnsýslu við Háskólann á Bifröst.  Á þinginu var rætt um  hvernig hægt væri að auka samvinnu þeirra 13 skóla sem starfa í sveitafélaginu Borgarbyggð, sem telur þó aðeins 3500 íbúa.</description>
Menntaþing á morgun 19. apríl
	<description>Menntaþing verður haldið í Hjálmakletti á morgun en þingið er afrakstur af nemendaverkefni nemenda í Sterkari stjórnsýslu á Bifröst.</description>
Vel heppnað styrktarkvöld að baki
	<description>Í gær var haldið styrktarkvöld fyrir Davíð Olgeirsson markaðsstjóra og fjölskyldu hans en Davið hlaut heilablóðfall í kjölfar slyss. Styrktarkvöldið hófst á barnaskemmtun með barnabingói og tók Unnur Eggerts lagið fyrir börnin. Að henni lokinni hófst kvöldskemmtun þar sem Svavar Knútur, Pétur Jesú, Matti Matt, Einar Þór, Kalli Baggalútur og fleiri héldu uppi fjörinu. Þegar staðan á styrktarsjóðnum var tekin um kvöldið var ljóst að 1.100.000 höfðu þegar safnast og átti þá eftir að gera upp miðasölu við dyrnar og barsölu en allur ágóði rann í sjóðinn.</description>
Vertu Bifrestingur í einn dag!
	<description>Hollvinum Bifrastar, fyrrverandi og núverandi nemendum býðst nú að bjóða vinum eða fjölskyldumeðlimum
sem eru að skoða möguleika sína á háskólanámi fyrir næsta haust að koma og prófa að vera Bifrestingur í einn
dag sér að kostnaðarlausu.
Viðburðurinn verður haldinn þann 11. apríl og hefst kl. 18.00 með kynningu á skólanum og þeim frábæru
aðstæðum sem skólinn býður upp á.
Boðið verður upp á kvöldverð og kvöldskemmtun að hætti Bifrestinga með trúbador og tilheyrandi.
Þátttakendum býðst svo að gista á Hótel Bifröst eina nótt.
Hægt er að skrá sig og sína til þátttöku með því að senda póst á bifrost@bifrost.is eða með því að hringja í síma
433-3000.</description>
Skemmtikvöld 9. apríl nk.
	<description>Þann 9. apríl nk. verður haldin skemmtun á Bifröst til styrktar Davíð Þorsteini Olgeirssyni, markaðsstjóra skólans sem hlaut heilablæðingu fyrir skömmu. Talstöðvar skemmdust og lamaðist Davíð í hægri hluta líkamans. Við tók endurhæfing á Grensás sem gengur mjög vel. Hann verður þó frá vinnu þar til bata hefur verið náð og því höldum við skemmtikvöld til styrktar honum og fjölskyldu hans.</description>
Stundarkennari á Bifröst ráðherra í Slóveníu
	<description>Jernej Pikalo, stundakennari við Háskólann á Bifröst frá árinu 2006 var gerður að félags-og menntamálaráðherra Slóveníu í kjölfarið af kosningum þar í landi nú um miðjan marsmánuð.  Nýja ríkisstjórnin er sú ellefta í landinu en sú fyrsta sem leidd er af konu, Alenku Bratusek.
Jernej Pikalo hefur verið vinsæll kennari á Bifröst en hann hefur kennt námskeið um hnattvæðingu í svokölluðu HHS námi, heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði, við Háskólann á Bifröst síðustu árin.  
Nýi ráðherrann er 37 ára og er með doktorsgráðu í félagsvísindum og er prófessor við Félagsvísindadeild háskólans í Lubljana.  Hann hefur sérhæft sig í að rannsaka áhrif hnattvæðingarinnar og skrifað bækur og haldið fjölda fyrirlestra um rannsóknarsvið sitt.  Hann er einnig þekktur í Slóveníu fyrir að vera álitsgjafi í fjölmiðlum. 
Rektor Háskólans á Bifröst hefur sent Jernej Pikalo hamingjuóskir með ráðherraembættið.</description>
Leikskólanum Hraunborg afhentur hænsnakofi
	<description>Nemendur frá Háskólanum á Bifröst stuðla að sjálfbærni á háskólasvæðinu.
Nemendur í áfanga sem kallast Forysta- og stjórnun í Háskólanum á Bifröst lögðu upp með það verkefni að setja upp hænsnakofa við leikskólann Hraunborg á Bifröst. Hópurinn sem kallar sig Gaggalagú fékk hugmyndina vegna margra frétta um það að Íslendingar hendi mat fyrir milljarða á ári hverju. Mitt í þeim fréttaflaumi kom frétt um það að frönsk stjórnvöld væru að hvetja íbúa þarlendis til þess að fá sér hænur til að vega upp á móti þeim matarafgöngum sem hent er. Fannst hópnum þetta afbragðshugmynd og ákvað í kjölfarið að það væri sniðug hugmynd til að auka sjálfbærni á Bifröst að koma upp hænsnabúi á svæðinu. Tóku leikskólinn og Hjallastefnan, sem rekur leikskólann, vel í þá hugmynd.
Fá börnin ásamt kennurum leikskólans kofa og hænur til eignar og munu þau sjálf hugsa um þær og nýta þeirra afurðir. Gefur það börnunum vonandi aukin tengsl við náttúruna og gleðina af því að fá að umgangast dýr ásamt því að kenna þeim sjálfbærni og endurvinnslu.
Leitaði Gaggalagú til hinna ýmsu aðila í Borgarbyggð um styrki og var vel tekið í það. Þau fyrirtæki sem veittu styrkveitingu eru Borgarbyggð, Límtré, Loftorka, Eðalfiskur og Arion banki. Auk þess gefur Kaupfélag Borgfirðinga allt auka fóður sem þarf fyrir utan matarafganga, til tveggja ára. Það er Jóhann Oddsson í Stafholtstungum sem gefur hænurnar í búið.</description>
Morgunfundur Rannsóknarseturs verslunarinnar
	<description>Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólanna á Bifröst stóð fyrir morgunfundi fimmtudaginn 21. mars í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, VR og SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu. Á fundinum fjölluðu fjórir fræðimenn um mikilvægt hlutverk verslunar til aukins hagvaxtar, fræðslustarf og áhrif gengissveiflna á verðlag.</description>
Málþing um siðareglur í opinberri þjónustu
	<description>Forsætisráðuneytið stendur fyrir málþingi um siðareglur í opinberri þjónustu, en málþingið er í samstarfi við Háskólann á Bifröst. Meðal ræðumanna eru Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Jón Ólafsson aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst, Janos Bertok og Róbert Spanó.</description>
Sigmundur Davíð á Bifröst
	<description>Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður gestur á miðvikudagsfyrirlestri á morgun 20. mars.</description>